Leitarseðill í Strandabyggð 2016
| 25. ágúst 2016
Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd Strandabyggðar hefur lokið við gerð Fjallskilaseðils Strandabyggðar fyrir árið 2016 en drög að honum voru samþykkt á sveitarstjórnarfundi þann 9. ágúst síðastliðinn.
Samkvæmt Fjallskilaseðli verður réttað í Strandabyggð sem hér segir:
- Skeljavíkurrétt, föstudaginn 9. september kl. 16:00
- Staðarrétt, sunnudaginn 11. september kl. 14:00
- Kirkjubólsrétt, sunnudaginn 18. september kl. 14:00
- Réttað verður í Broddanesi sunnudaginn 18. september kl. 16:00
Hér má sjá Fjallskilaseðil 2016 í Strandabyggð