Ljósmyndasýning í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík
| 27. nóvember 2011
Fjöldi fólks lagði leið sína í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík í gær þar sem ljósmyndasýning Haraldar Auðunssonar eðlisfræðings var opnuð. Haraldur sem er gestur Þjóðfræðistofu í Skelinni var kennari við Grunnskólann á Hólmavík 1976-1977 og heldur nú sýningu á ljósmyndum sínum frá þeim tíma. Á sýningunni eru gestir hvattir til að merkja alla þá sem þeir þekkja á myndunum. Haraldur hefur einnig staðið fyrir eðlisfræðiverkefni fyrir 9. og 10. bekk Grunnskólans á Hólmavík undanfarna daga en Þjóðfræðistofa og gestir í Skelinni hafa verið í skemmtilegu samstarfi við skólann í haust.