Minnum á fund um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál
| 09. nóvember 2011
Minnum á opinn fund um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál sem verður haldinn í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 10. nóvember n.k. Herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun flytja framsögu um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, stöðu þeirra í dag og fyrirhugaðar breytingar.
Á fundinum verða einnig stuttar framsögur þar sem farið verður yfir stöðuna í þessum stóru málaflokkum á Ströndum og nýsköpun í atvinnugreinunum hér.
Dagskráin verður sem hér segir:
- Sjávarútvegs-og landbúnaðarmál - herra Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Jón Jónsson - varaoddviti í Strandabyggð
- Landbúnaðarmál - Matthías Lýðsson bóndi í Húsavík
- Sjávarútvegsmál - Óskar Torfason framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Drangs ehf., Drangsnesi
- Sjávarútvegsmál - Már Ólafsson í stjórn Landssambands smábátaeigenda og í stjórn Strandir, félags smábátaeigenda í Strandasýslu
- Pallborðsumræður
Fundarstjóri er Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri í Strandabyggð.
Íbúar í öllum sveitarfélögum á Ströndum og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn sem hefst kl. 17:00