Myndlistasýning í Austurhúsi Galdrasafnsins
| 20. nóvember 2010
Guðrún Tryggvadóttir, myndlistakona, heldur sýningu á verkum sínum í Austurhúsi Galdrasafnsins sunnudaginn 21. nóvember kl. 16:00. Kvenfélagið verður með kaffi- og kökusölu í tengslum við sýninguna. Guðrún vinnur að verkum sem myndgera ættartengsl og kynslóðaskipti. Hún er fyrsti þátttakandinn í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl á Ströndum, sem Þjóðfræðistofa stendur fyrir. Skelin er nú þegar uppbókuð fyrir um tuttugu lista- og fræðimenn sem munu dvelja í húsnæði Hólmakaffi að Hafnarbraut 7. Búast má við fjölmörgum menningarviðburðum í vetur í tengslum við Skelina en verkefnið er m.a. styrkt af sveitarfélaginu Strandabyggð. Frekari upplýsingar um bakgrunn og feril Guðrúnar má sjá á heimasíðu Þjóðfræðistofu.