Nafnasamkeppni
| 28. maí 2019
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir tillögum að nöfnum á félagsheimilið og á íþróttamiðstöðina á Hólmavík. Sveitarstjórn Strandabyggðar velur úr innsendum tillögum.
Tillögum á að skila inn til tómstundafulltrúa Strandabyggðar á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is fyrir 10.júní 2019, nöfnin verða svo tilkynnt við setningu Hamingjudaga á Hólmavík þann 28. júní 2019