Námsverið á Höfðagötu 3.
| 13. október 2009
Fjölmargir námsmenn í Strandabyggð hafa nýtt sér Námsverið frá því að það var opnað á þriðju hæð hússins að Höfðagötu 3. Hafa námsmenn sólarhringsaðgang að námsverinu og geta nýtt sér borðtölvur, þráðlausa nettengingu og prentara. Slík námsver hafa verið starfrækt víða um land með góðum árangri og eru oft undanfari þess að opnuð sé framhaldsdeild á viðkomandi stað. Þeir sem vilja nýta sér Námsverið geta komið á skrifstofu Strandabyggðar og fengið lykil afhentan.