Nemendur úr Tónskóla Hólmavíkur spila í Stykkishólmskirkju
| 12. mars 2011
Nótan, uppskeruhátíð fyrir tónlistarskóla á Vesturlandi, Vestfjörðum og Vestur-Húnavatnssýslu verður haldin hátíðleg í Stykkishólmskirkju í dag. Sex nemendur úr Tónskólanum á Hólmavík taka þátt í hátíðinni en það eru þau Gunnur Arndís Halldórsdóttir, Tómas Andri Arnarsson, Ísak Leví Þrastarson, Sara Jóhannsdóttir, Dagrún Kristinsdóttir og Stella Guðrún Jóhannsdóttir. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en í fyrra var svæðishátíðin haldin hér á Hólmavík. Uppskeruhátíðin er hugsuð sem ný vídd í starfsemi tónlistarskóla og er markmiðið að auka sýnileika og styrkja tengsl tónlistarskóla við umhverfi sitt. Uppskeruhátíðin er þrískipt og skipulögð þannig að þátttakendur frá öllu landinu, á öllum aldri, búa til efnisdagskrá sem endurspeglar ólík viðfangsefni tónlistarnemenda á öllum stigum tónlistarnáms. Hátíðin er nú haldin öðru sinni en í fyrra var svæðishátíðin haldin hér á Hólmavík.