Ný slökkvibifreið Strandabyggðar
Salbjörg Engilbertsdóttir | 03. maí 2018
Strandabyggð hefur fest kaup á nýrri slökkvibifreið af gerðinni Man. Einar Indriðason slökkviliðsstjóri og Sverrir Guðbrandsson starfsmaður Áhaldahúss sóttu bílinn í gær og komu honum í breytingu til Ósafls á Ólafsfirði en stefnt er á að hann verði tilbúinn haustið 2018. Þetta er mikið framfararskref enda núverandi bílafloti slökkviliðsins að nokkru kominn til ára sinna.