Nýtt starf: Félagsmálastjóri á Ströndum og Reykhólahreppi
Sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur auglýsa nýtt og spennandi starf sameiginlegs félagsmálastjóra laust til umsóknar. Sveitarfélögin bjóða upp á heillandi mannlíf, einstaka náttúrufegurð og fjölbreytt starfsumhverfi. Um er að ræða 70% starf með möguleikum á viðbótarverkefnum hjá sveitarfélögunum.
Helsta starfssvið félagsmálastjóra:
- Almenn fagleg félagsleg ráðgjöf
- Yfirumsjón með málefnum fatlaðra
- Móttaka og úrvinnsla á umsóknum um fjárhagsaðstoð
- Mannaforráð og skipulag félagslegrar heimaþjónustu
- Forvarnir, fræðsla og samskipti við íbúa í sveitarfélögunum
- Önnur málefni félagsþjónustu sem upp koma á svæðinu
Hæfniskröfur:
- Félagsráðgjöf, þroskaþjálfun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
- Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni fatlaðra eða sambærilegum störfum mikilvæg
- Hæfni í mannlegum samskiptum, forystu- og skipulagshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áræðni og dug til að vera leiðandi í uppbyggingu og þróun á félagsþjónustu á svæðinu. Félagsmálastjóri vinnur náið með nýrri sameiginlegri velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra. Starfið krefst ferðalaga um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf og bíl til umráða. Staðsetning meginsstarfsstöðvar félagsþjónustunnar verður ákveðin í samráði við nýjan félagsmálastjóra.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til: Skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík.
S: 451-3510. Netfang: holmavik@holmavik.is
Umsóknarfrestur er til 12. desember 2010.