Nýtt þjónustuhús á tjaldsvæðið
| 28. maí 2019
Nýtt þjónustuhús er nú að rísa á tjaldsvæðinu. Þetta er hið glæsilegasta hús, smíðað af Trésmiðjunni Höfða, og verður án efa vel tekið af fjölmörgum gestum tjaldsvæðisins í sumar. Framundan er síðan endurhönnun tjaldsvæðisins, sem unnin er með verkfræðistofunni VERKÍS.