Orkusalan færir gjafir
Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. maí 2020
Í gær fengum við góða gesti frá Orkusölunni sem færðu Strandabyggð 90 birkiplöntur að gjöf og tók Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir formaður Umhverfis- og skipulagsnefndar við gjöfinni fyrir hönd sveitarfélagsins. Þeim mun verða plantað í sumar á völdum stöðum í sveitarfélaginu undir umsjón Sigríðar Drífu Þórólfsdóttur og vinnuskólans. Orkusölunni færum við okkar bestu þakkir fyrir gjöfina.