Öryggismyndavélar og sláttur túna
| 12. júní 2019
Nú er unnið að uppsetningu öryggismyndavéla við höfnina og í íþróttamiðstöðinni. Það er Tengill frá Sauðárkróki sem sér um verkið ásamt okkar mönnum í Áhaldahúsinu. Á morgun, fimmtudag 13. júní, hefst svo sláttur garða og túna í landi sveitarfélagsins.
Það er því margt að gerast þessa dagana enda sumarið komið!