Óskað eftir húsnæði til leigu
| 03. ágúst 2010
Strandabyggð auglýsir hér með eftir íbúðarhúsnæði á Hólmavík til leigu fyrir nýráðinn sveitarstjóra og fjölskyldu hennar.
Þeir sem hafa yfir heppilegu húsnæði að ráða eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu Strandabyggðar í s. 451-3510 (holmavik@holmavik.is) eða Jón Gísla Jónsson oddvita í s. 661-7061.
Góðar og gagnlegar ábendingar eru líka vel þegnar.