Réttað í Strandabyggð
| 06. september 2011
Nú nálgast haustið og þar með styttist í leitir og réttir. Fyrstu réttardagarnir í Strandabyggð eru um næstu helgi, en þá verður réttað í Skeljavíkurrétt við Hólmavík á laugardegi og sunnudegi, kl. 16:00 báða dagana. Næstu réttir eru viku síðar, sunnudaginn 18. september, í Staðarrétt og Kirkjubólsrétt kl. 14:00 á báðum stöðum.
Fólk er eindregið hvatt til að gera sér dagamun og kíkja í réttirnar í haust. Leitir og réttir eru nefnilega afskaplega hressandi og skemmtileg iðja, hvort sem menn eru í því hlutverki að rölta um fjöll, draga í dilka eða bara horfa á iðandi mannlífið sem blómstrar í kringum sauðfjárbúskapinn þegar hausta tekur.