Samstarf Strandabyggðar og Hvatastöðvarinnar
Strandabyggð og Hvatastöðin sem Esther Ösp Valdimarsdóttir er í forsvari fyrir, hafa gert með sér samstarfssamning til næstu sex mánaða um að Strandabyggð veiti Hvatastöðinni aðgang að húsnæði undir sína starfsemi, sem verður í Flugstöðinni. Markmið þessa samnings er að efla lýðheilsu íbúa Strandabyggðar og stuðla um leið að uppgangi nýrra frumkvöðlafyrirtækja í Strandabyggð.
Hvatastöðin vill að veita íbúum Strandabyggar sem og öðrum, tækifæri til slökunar, andlegrar eflingar og almennrar hreysti með fjölbreyttu framboði heilsueflandi æfinga og námskeiða. Á vegum Hvatastöðvarinnar verður í fyrstu boðið upp á jogatíma en í kjölfarið verður ýmislegt fleira á döfinni, ýmis námskeið og viðburðir við allra hæfi
Hvatastöðin opnar laugardaginn 19. janúar, í Flugstöðinni á hátíðinni Vetrarsól á Ströndum, sem stendur helgina 18-20 janúar 2019.