Skemmtiferð Félagsmiðstöðvarinnar Ozon
| 03. mars 2012
Krakkarnir í félagsmiðstöðinni Ozon eru í sannkallaðri skemmtiferð í höfuðborginni nú um helgina. Í gær héldu tæplega þrjátíu hressir krakkar af stað undir leiðsögn Arnars S. Jónssonar tómstundafulltrúa Strandabyggðar, Alfreð Gests Símonarsonar bílstjóra og Bjarna Ómars Haraldssonar gæslumanns. Fyrsti áfangastaður var Stjörnutorg í Kringlunni þar sem fyllt var á orkuna fyrir hið eina sanna Samfésball þar sem Páll Óskar, Emmsé Gauti, Jón Jónsson og DJ Sindri BM komu fram. Að sögn Arnars gekk allt eins og í sögu og voru krakkarnir til fyrirmyndar og skemmtu sér vel.
Í dag er það svo Söngkeppni Samfés þar sem okkar flytjendur, GóGó-píurnar, munu stíga síðastar af þrjátíu atriðum á svið í Laugardalshöllinni. GóGó-píurnar, þau Brynja Karen Daníelsdóttir, Fannar Freyr Snorrason, Gunnur Arndís Halldórsdóttir, Margrét Vera Mánadóttir og Sara Jóhannsdóttir sigruðu Vestfjarðariðilinn í Súðavík í febrúar með flutningi á laginu Do Lord með íslenskum texta eftir Arnar S. Jónsson. Hér má sjá og heyra glæsilegan flutning lagsins Lýstu skært (Do Lord) hjá þeim í Súðavík. Söngkeppnin verður sýnd beint í Sjónvarpinu RÚV og hefst kl. 13:00 í dag. Undirbúningur hófst kl. átta í morgun þar sem dömurnar fengu förðun, hárgreiðslu og aðstoð við undirbúninginn en þær koma fram í kjólum sem Stella Guðrún Jóhannsdóttir nemandi í 10. bekk saumaði með aðstoð móður sinnar Guðrúnar Guðfinnsdóttur.
Eftir söngkeppnina heldur fjörið áfram þar sem hópurinn fer á skauta, í Laser-Tag, pizzuveislu og í bíó í kvöld. Á morgun ætla þau svo í diskókeilu, leiktæki, GoKart og borða saman áður en þau halda af stað aftur til Hólmavíkur.