Skemmtiferðaskip til Hólmavíkur í sumar
| 05. júní 2019
Skútan Panorama kemur til Hólmavíkur fimmtudaginn 13. júní n.k. og er þetta í fyrsta sinn sem skemmtiferðaskip kemur til Hólmavíkur í skipulagða ferð. Panorama, sem tekur 48 farþega, kemur 9 sinnum í sumar. Það má segja að góð samvinna og skjót viðbrögð allra sem að málinu komu, hafi gert þetta að veruleika. Hólmavík er komin á kortið sem formlegur áfangastaður skemmtiferðaskipa!
Farþegar Panorama munu fara í rútuferð með leiðsögn um Strandir, auk þess sem þeir munu heimsækja Sauðfjársetrið, Galdrasafnið og borða á Café Riis. Við fögnum þessum gestum og þessum áfanga, um leið og við horfum til frekari sóknar inn á þennan markað. Nú þegar eru komnar fyrirspurnir fyrir sumarið 2021.
Þeir sem vilja fræðast um skútuna og fyrirtækið, geta kíkt á eftirfarandi heimasíðu: https://www.varietycruises.com/ships/ships/panorama