Skemmtilegur siður þýskra iðnnema
Salbjörg Engilbertsdóttir | 22. júní 2017
Undanfarin ár hefur komið fyrir að starfsmaður á skrifstofu hefur þurft að gefa þýskum iðnnemum stimpil í vinnubók til að votta dvöl þeirra við vinnu og ýmis störf. Sá siður er þekktur í Þýskalandi að iðnnemar þ.e. bakarar, trésmiðir, klæðskerar og fl. fari vissan radíus út fyrir sitt heimahérað i þrjú ár og 1 dag og vinni fyrir sér í sinni iðngrein. Áður var þetta skylda en er nú val hvers og eins. Þetta eru aðallega handverksfólk, ekki iðnnemar í vélsmíði t.d. Klæðnaðurinn er sérstakur og mismunandi eftir greinum og ekki er leyfilegt að nota síma eða nútíma tækni. Skemmtilegur siður og gaman að hitta þau.