Skrifstofa Strandabyggðar að Höfðagötu 3
| 24. janúar 2011
Skrifstofa Strandabyggðar er flutt að Höfðagötu 3, 2. hæð. Gengið er inn um aðalinngang að Þróunarsetrinu. Net- og símasamband er komið á og starfsemin að falla í réttar skorður. Beðist er velvirðingar á ónæðinu sem flutningarnir hafa haft í för með sér.
Opnunartími skrifstofunnar er óbreyttur, en opið er frá kl. 9:30 - 15:00.
Myndir frá flutningunum má sjá á facebook-síðu sveitarfélagsins Strandabyggðar, sjá hér.