Skrifstofa í Þróunarsetrinu á Hólmavík er laus til útleigu
| 13. nóvember 2015
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til útleigu lítið skrifstofurými á þriðju hæð í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Aðstaðan er um 12,5 m2 og skiptist í tæplega 9 m2 fremra rými og 3,5 m2 innra rými (vinnuaðstaða/geymsla) en auk þess er aðgangur að sameiginlegu rými.
Allar frekari upplýsingar má fá á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 á Hólmavík, í síma 4513510 en einnig má senda fyrirspurnir á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is
Umsóknir um leiguhúsnæði skulu berast skrifstofu Strandabyggðar Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða í tölvupósti á strandabyggd@strandabyggd.is. fyrir kl. 14:00 mánudaginn 24. nóvember 2015.