Starfsdagur og starfsmannagleði í Strandabyggð
| 08. september 2011
Föstudaginn 30. september n.k. verður haldinn starfsdagur fyrir starfsfólk sveitarfélagsins Strandabyggðar. Starfsdagurinn fer fram milli kl. 13:00 - 16:00 og verða stofnanir sveitarfélagsins lokaðar á þeim tíma. Hjá Strandabyggð vinnur stór hópur af öflugu fólki sem veitir íbúum fjölbreytta grunnþjónustu. Á starfsdeginum er mikilvægt að staldra við og stilla saman strengi áður en haldið er inn í framtíðina. Um kvöldið verður starfsmannagleði Strandabyggðar á Café Riis þar sem starfsfólk ásamt mökum mun koma saman, borða góðan mat, gleðjast og fagna fallegu hausti.