Starfsmenn óskast í verslun og veitingasölu í Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
| 19. ágúst 2016
Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu og önnur afleysingarstörf.
Starfið er fjölbreytt í líflegu starfsumhverfi þar sem létt lund, þjónustulipurð, heiðarleiki, snyrtimennska og dugnaður skiptir máli.
Hæfniskröfur
- Reynsla af hliðstæðu starfi er æskileg
- Metnaður fyrir starfi, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði
- Góð þjónustulund og færni í samskiptum
Verkefni
- Afgreiðsla
- Vörumóttaka og framsetning í verslun
- Bakstur og framreiðsla
- Samskipti við stjórnendur og starfsfólk verslunar
- Önnur tilfallandi störf
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Hrefna í síma 455-3104. Umsóknir skulu berast á skrifstofu kaupfélagsins eða í tölvupósti á viktoria@ksholm.is