Strandabyggð auglýsir eftir verktaka við Krossárrétt
Þorgeir Pálsson | 17. ágúst 2022
Strandabyggð auglýsir eftir verktaka til að setja upp rétt við Krossárósa í Bitrufirði
Verklýsing:
- Viðkomandi þarf að setja niður 9 rafmagnsstaura. Hver staur er um 2 metrar og þarf að fara ca 90 cm niður
- Tengja fjárgrindur milli stauranna. Hver grind er 180x110 cm. Gerð: 1,8 Open rail hurdle
- Setja niður um 160 metra af girðingu við réttina. Gerð: Girðinganet Dragon 6 str, 100m grænt
- Gaddavír settur neðst. Gerð: IOWA járnvír 200M, 2,5 MM
- Staurar: Staurar 70 x1800mm yddaðir
Teikningu byggingarfulltrúa má nálgast hjá sveitarstjóra.
Efni er keypt eða útvegað af verkkaupa og verður á staðnum
Verklok: 8. september: Verktaki skal skila sinni vinnu í síðasta lagi 8. september n.k. kl 16:00. Vinna við verkið ætti að geta hafist snemma í vikunni 22-26. ágúst.
Frestur til að skila tilboði er á miðnætti sunnudaginn 21.ágúst n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri í síma 899-0020 eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is