Strandabyggð óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa
Byggingarfulltrúi
Strandabyggð óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa til starfa með aðsetur á Hólmavík. Auk Strandabyggðar sinnir starfsmaðurinn verkefnum byggingarfulltrúa fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Kaldrananeshrepp og Reykhólahrepp.
Um er að ræða 100% starf. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni. Helstu verkefni eru samkvæmt lögum og samþykktum sveitarfélaganna hverju sinni á sviðum byggingareftirlits, samkvæmt skipulags- og mannvirkjalögum.
Starfssvið
• Ábyrgð á stefnu sveitarstjórnanna í málaflokkum sem undir hann heyra
• Framkvæmd byggingarmála, byggingareftirlits
• Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
• Undirbúningur og eftirfylgni funda nefnda sveitarfélaganna er sjá um byggingarmál
• Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála
• Önnur tilfallandi verkefni svo sem varðandi viðhald, minniháttar hönnunarverkefni o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði byggingarmála skv. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
• Þekking og reynsla að þeim málaflokkum sem falla undir sviðið
• Þekking og reynsla af stjórnun, áætlanagerð og rekstri
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
• Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.
Umsóknarfrestur til: 14. apríl 2019