Strandamenn hlaupa
| 26. ágúst 2013
Það er ekkert launungamál að íbúar Strandabyggðar og brottflutt fólk frá Ströndum er heilsuhraust og kraftmikið upp til hópa. Í nýafstöðnu Reykjavíkurmaraþoni tóku rúmlega tuttugu íbúar Strandabyggðar þátt, hið minnsta. Það gera 6% íbúa bæjarfélagsins á meðan heildarþátttaka á landsvísu var nær 4%.
Það er engin ástæða til að leggja hlaupaskóna á hilluna að þessu loknu. Nær væri að hnýta á sig skóna meðan hlaupastemmningin er enn allsráðandi og stefna að þátttöku að ári. Klukkan 17:00 í dag ætlar hlaupahópurinn Margfætlurnar að fara í létt hlaup frá Íþróttamiðstöðinni, að því búnu verður fundað um vetrarstarf hópsins.
Til hamingju allir sem hlupu og allir sem ætla að byrja núna.