Styrkir hjá Strandabyggð, haustúthlutun
Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. ágúst 2018
Samkvæmt reglum um styrkveitingar hjá Strandabyggð, ber umsóknaraðilum að skila inn styrkumsóknum samkvæmt meðfylgjandi reglum fyrir 1.febrúar eða 1. september. Að þessu sinni verður þó gefin frestur til umsókna til 6.september vegna seinni hluta ársins. Sveitarstjórn mun síðan fara yfir allar umsóknir á fundi 11. september n.k. Ef sótt er um styrk umfram 100.000 þúsund krónur skal leitað eftir samstarfssamningi við sveitarfélagið. Hér má finna umsóknareyðublað.
Við viljum einnig benda félagasamtökum á að sækja um styrki á móti fasteignagjöldum innan ársins, en reglur þar um voru samþykktar í desember 2015. Sjá umsóknareyðublað og reglur hér.
Við viljum einnig benda félagasamtökum á að sækja um styrki á móti fasteignagjöldum innan ársins, en reglur þar um voru samþykktar í desember 2015. Sjá umsóknareyðublað og reglur hér.