Sumar í Strandabyggð
| 07. júlí 2020
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Það er mikið að gerast í Strandabyggð þessa dagana. Hamingjudagar voru nýlega og tókust mjög vel. Lotta kom eins og áður en nú var sýningin þeirra í lundinum við hliðina á Bragganum og það reyndist frábær staður. Dagskrá Hamingjudaga var annars nokkuð viðamikil, með brekkusöng, varðeld, hamingjuhlaupi, hamingjujoga, opnum húsum, söngatriði Unnar Malínar, Galdraleikum ofl.
Síðustu dagar hafa verið sérlega góðir á Hólmavík; sól og sæla. Vinnuskólakrakkarnir hafa unnið vel í að fegra umhverfið okkar og sést það um allan bæ. Síðan var formleg opnun á ærslabelgnum í gær, með pylsupartýi og fjöri.
Að auki hefur Geislinn boðið upp á tveggja vikna leikjanámskeið fyrir yngri börnin og íþróttaþjálfun fyrir þau eldri. Þetta bætist við leikjanámskeið og Náttúrubarnaskóla sem voru í síðasta mánuði. Þannig að það er nóg að gerast á Hólmavík!
Njótum sumarsins!