Sumarnámskeið
Boðið verður upp á sumarnámskeið í samstarfi Strandabyggðar, Náttúrubarnaskólans og Henrike Stuehff
Námskeiðin eru fyrir 6-12 ára krakka, hálfan eða allan daginn.
Vika 1 (11.-14.júní): Útivistarnámskeið fyrir hádegi og Náttúrubarnaskóli eftir hádegi.
Vika 2 (18.-21.júní): Hamingjudaganámskeið fyrir hádegi og Náttúrubarnaskóli eftir hádegi.
Námskeiðin fara fram við/í Félagsheimilið á Hólmavík og á Sævangi, en þangað fer skólabíll.
Verð:
Fyrir börn sem eiga foreldri með lögheimili í Strandabyggð:
Fyrri vika (4 dagar): 11.000 kr hálfur dagur og 16.000 kr. allur dagurinn.
Seinni vika (4 dagar): 11.000 kr hálfur dagur og 16.000 kr allur dagurinn.
Fyrir börn sem ekki eiga foreldri með lögheimili í Strandabyggð:
Fyrri vika (4 dagar): 15.000 kr hálfur dagur og 20.000 kr allur dagurinn.
Seinni vika (4 dagar): 15.000 kr hálfur dagur og 20.000 kr allur dagurinn.
Sundnámskeið verður haldið á sama tíma 11.- 21.júní í 7 skipti.
Sundnámskeið fyrir 3 - 6 ára leikskólabörn með foreldrum kl. 9.00 – 9.30
Verð: 6 þús. á barn, 10 þús fyrir 2. barn (systkini).
Sundnámskeið fyrir 6 – 12 ára grunnskólanemendur, 2 hópar kl.9.30-10.30 og kl.10.30-11.30.
Verð 10 þús. á barn, 8 þús á 2. barn (systkini).
Sundkennari er Henrike Stuehff. Greiðsla á sundnámskeið fer fram hjá sundkennara.
Börn sem taka þátt allan daginn báðar vikurnar borga þó aðeins 25.000 krónur ef foreldri á lögheimili í Strandabyggð.
Þau börn sem skrá sig á sundnámskeið og sumarnámskeið allan daginn í tvær vikur fá afslátt af sumarnámskeiðsgjaldi greiða aldrei meira en 30.000 kr.
Innifalið er kennsla, gögn, ávaxtastund fyrir hádegi, kaffitími eftir hádegi og Náttúrubarnastrætó.
Boðið er upp á 20% systkinaafslátt.
Skráning fer fram hér
https://docs.google.com/forms/d/1ABDy4hJ9jqKxEuEYnFCEFu6X1kW2sgbQJkvHKMquzwE/edit
Skráningu lýkur 4.júní 2019