Sundlaug lokuð vegna viðgerða
Salbjörg Engilbertsdóttir | 13. maí 2015
Vegna viðgerðar á vatnslögnum sundlaugar þarf að tæma laugina og verður hún vatnslaus frá og með mánudeginum 11. maí til og með föstudeginum 15. maí.
Mánudaginn 11. maí fer einnig fram viðgerð á busllauginni og verður síðan vatni hleypt á hana í lok vikunnar.
Vonandi verður vorið komið þegar sundlaugin og busllaugin eru tilbúnar.