Sundlaugin opnar!
Þorgeir Pálsson | 03. maí 2024
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Frá og með morgundeginum, laugardeginum 4. maí, verður sundlaugin opin að nýju. Eftir að ákveðið var að sundkennsla grunnskólans yrði hér á Hólmavík en ekki í Bjarnarfirði, hefur laugin verið hituð upp og nú er allt að verða tilbúið fyrir notkun.
Við hvetjum íbúa til að skella sér í sund um helgina.
Kveðja
Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar