Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir störf til umsóknar
Grunnskólinn á Hólmavík og Leikskólinn Lækjarbrekka
Lausar stöður skólaárið 2020-2021
- Staða umsjónarkennara á yngsta stigi 100%. Um er að ræða samkennslu í 1. – 3. bekk. Allar almennar kennslugreinar.
- Staða umsjónarkennara á unglingastigi 100%. Um er að ræða samkennslu í 7. – 10. bekk. Allar almennar kennslugreinar.
- Staða íþróttakennara 100%. Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum og sundi og þjálfun íþróttagreina í samstarfi við íþróttafélagið Geislann á Hólmavík.
- Tvær stöður leikskólakennara100%. Um er að ræða almennt starf á deild.
- Staða stuðningsfulltrúa 100%. Um er að ræða þjálfun nemanda með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og tómstundastarfi.
Umsækjendur um kennarastöður þurfa að hafa kennsluréttindi. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og teymisvinnu. Reynsla af samkennslu árganga, og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. júní 2020.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430, netfang skolastjori@strandabyggd.is
Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is
Staða Tómstundafulltrúa
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling sem hefur unun af samskiptum. Um 75% starf er að ræða.
Helstu verkefni
- Verkefnavinna og stefnumótun á sviði tómstunda-, íþrótta- og menningarmála í Strandabyggð
- Samvinna með skólastjóra Grunn-, leik- og tónskóla Hólmavíkur að málefnum á sviði menntunar og tómstunda
- Vinna með Tómstunda-, íþrótta og menningarnefnd sveitarfélagsins
- Umsjón með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Ozon og ungmennahússins Fjóssins
- Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar
- Umsjón með skipulögðu starfi eldri borgara í Strandabyggð
- Verkefnastjórnun við hátíðahöld og viðburði á vegum Strandabyggðar
- Undirbúningur vegna vinnuskóla, menningardvalar og sumarnámskeiða
- Stuðningur við félagastarf á sviði tómstunda, íþrótta og menningar
- Sérstök nýsköpun og stuðningur við þá hópa sem hafa lítið framboð við hæfi í Strandabyggð
- Samvinna við nágrannasveitarfélög og á landsvísu á sviði tómstundamála
- Samstarf við íþróttafélög, starfsfólk íþróttamiðstöðvar og félagasamtök á svæðinu
Æskileg menntun, færni og eiginleikar
- Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi
- Skipulags- og stjórnunarfærni
- Reynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum
- Samskiptafærni og geta til að tjá sig í ræðu og riti
- Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
- Er hvetjandi og góð fyrirmynd
Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. júní 2020. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is
Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, í síma 451-3510 eða 899-0020, eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is
Í Strandabyggð búa um 460 manns og er Hólmavík þéttbýlisstaður sveitarfélagsins. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt. Boðið er upp á leikskólapláss fyrir börn frá 9 mánaða aldri og auk grunnskóla fyrir börn frá 1.-10. bekk er á staðnum dreifnámsbraut frá FNV fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Öflugt tómstunda-, íþrótta- og menningarstarf er í sveitarfélaginu, s.s. skíðafélag, tveir kórar fyrir fullorðna, tónlistarskóli og áhugaleikfélag og hugað er að því að sem flestir aldurshópar fái notið sín.