Sveitarstjórnarfundur 1210 í Strandabyggð
| 23. júní 2013
Fundur 1210 verður haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 25. júní 2013, kl. 16.00 í Hnyðju.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Undirbúningur lántöku vegna kaupa á íbúð að Miðtúni 17 á Hólmavík
- Undirbúningur lántöku vegna gatnaframkvæmda á Hólmavík
- Erindi frá Leikskólanum Lækjarbrekku, beiðni um kaup á iPad spjaldtölvum við sérkennslu, dagsett 20/06/2013
- Erindi frá Sýslumanninum á Hólmavík, beiðni um umsögn sveitarstjórnar um rekstrarleyfi vegna veitingasölu í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, dagsett 22/05/2013
- Erindi frá Fjórðungsssambandi Vestfirðinga, skipan fulltrúa í skipulagshóp nýtingaráætlunar strandsvæðis við Ísafjarðardjúp, dagsett 12/06/2013
- Erindi frá Engilberti S Ingvarssyni varðandi minnismerki um Stefán frá Hvítadal, dagsett 03/06/2013
- Erindi frá Rúnu Stínu Ásgrímsdóttur, úrsögn úr nefndum, dagsett 30/05/2013
- Fundargerð stjórnar NAVE frá 23/04/2013
- Ársskýrsla félagsþjónustu Stranda og Reykhólarepps
- Fundargerð Velferðarnefndar
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Jón Gísli Jónsson
Jón Jónsson
Ásta Þórisdóttir
Bryndís Sveinsdóttir
Viðar Guðmundsson
21. júní 2013
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri Strandabyggðar