Sveitarstjórnarfundur 1222 í Strandabyggð
| 02. maí 2014
Fundur 1222 verður haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 6. maí 2014, kl. 16.00 í Hnyðju.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ársreikningur Strandabyggðar 2013 – síðari umræða
- Styrkumsókn frá Skíðafélagi Strandamanna vegna byggingar skíðaskála á Brandsholti í Selárdal, dagsett 01/05/2014
- Styrkumsókn vegna skógræktar á Víðidalsá, dagsett 02/05/2014
- Umsóknir um námsvist utan lögheimilissveitarfélags vegna skólaársins 2014 – 2015
- Erindi frá Hlyni Gunnarssyni sem frestað var á fundi 1215 þann 27/11/2013
- Fundargerð Velferðarnefndar frá 25/04/2014
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnda frá 28/04/2014
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Jón Gísli Jónsson
Jón Jónsson
Ásta Þórisdóttir
Bryndís Sveinsdóttir
Viðar Guðmundsson
2. maí 2014
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri Strandabyggðar