Sveitarstjórnarfundur 1249 í Strandabyggð - fundarboð
| 27. maí 2016
Fundur nr. 1249 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 31. maí 2016, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2015 – síðari umræða
- Bréf frá Samandi sveitarfélaga varðandi vinnu við landsáætlun um uppbyggingu innviða – greining á uppbyggingarþörf. Óskað er eftir skipun tengiliðs sveitarfélags við verkefnið. Dagsett 2/5/2016
- Frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, beiðni um umsögn á skýrslu um stefnumörkun sveitarfélaga á Vestfjörðum, fyrstu skref. Dagsett 24/5/2016
- Ræða Smára Haraldssonar forstöðumanns Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða sem hann flutti á síðasta ársfundi fræðslumiðstöðvar þann 4/5/2016
- Þinggerð 61. Fjórðungsþing Vestfirðinga frá 4/5/016
- Fundargerð 385 fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands frá 17/5/2016
- Fundargerð Fræðslunefndar frá 25/5/2016
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 30/5/2016
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Emilsdóttir
Jóhann Björn Arngrímsson
Jón Gísli Jónsson
27. maí 2016
Andrea Kristín Jónsdóttir
sveitarstjóri