Sveitarstjórnarfundur 1266 í Strandabyggð
| 06. október 2017
Fundur nr. 1266 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 10. október 2017, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2017-2018
- Erindi frá Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar, svæðisskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu lagðar fram tilkynningar og umsagnar, dagsett 27/9/2017
- Tillaga Ísafjarðarbæjar um breytt skipulag og framkvæmd á þjónustu við fatlað fólk á Vestfjörðum, lagt fram til kynningar, dagsett 15/9/2017
- Ákvörðun sveitarstjórnar um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins
- Afgreiðsla viðauka við fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2017
- Skýrsla forstöðumanna og sveitarstjóra fyrir september
- Fundargerð stjórna Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 6/9/2017
- Fundargerð Ungmennaráðs frá 5/10/2017
- Fundargerð Velferðarnefndar frá 26/9/2017
- Fundargerð Fræðslunefndar frá 9/10/2017
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 9/10/2017
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Jóhann Björn Arngrímsson
Jóhann Lárus Jónsson
Jón Gísli Jónsson
6. október 2017
Andrea Kristín Jónsdóttir
Sveitarstjóri