Sveitarstjórnarfundur 1274 í Strandabyggð
| 11. maí 2018
Á fundi 1273 í sveitarstjórn Strandabyggðar sem fram fór 8. maí 2018 var samþykkt að næsti sveitarstjórnarfundur færi fram þann 15. maí 2018. Hér er því boðað að fundur nr. 1274 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 15. maí 2018, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Ársreikningur Strandabyggðar fyrir árið 2017 lagður fram til fyrri umræðu
- Erindi frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar vegna kaupa á salernishúsi, dagsett 30/4/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar.
- Erindi frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Strandabyggðar, varðar yfirlagnir á götum, dagsett 2/5/2018. Afgreiðslu erindis frestað á fundi þann 8. maí og óskað eftir frekari gögnum frá forstöðumanni þjónustumiðstöðvar.
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Ásta Þórisdóttir
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson
11.. maí 2018
Andrea Kristín Jónsdóttir
Sveitarstjóri