Sveitarstjórnarfundur nr.1349 í Strandabyggð
Salbjörg Engilbertsdóttir | 03. ágúst 2023
Fundur nr. 1349 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 8. ágúst kl. 16.00 í Hnyðju Höfðagötu 3, Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Viðauki II við fjárhagsáætlun 2023 – til afgreiðslu
- Tónlistarskólinn á Akureyri, erindi 15.júní 2023 v. umsókna tveggja nemenda með lögheimili í Strandabyggð og beiðni um milligöngu v.kostnaðar – til afgreiðslu
- Breytingar á nefndarskipan – til afgreiðslu
- Umhverfis- og skipulagsnefnd fundargerð frá 3. Ágúst 2023 – til afgreiðslu
- Grunnskólinn á Hólmavík, staða framkvæmda – til kynningar
- Innviðaráðuneyti bréf frá 24. Júlí 2023 v. athugasemdar við stjórnsýslu Strandabyggðar - til kynningar
- Bændasamtök Íslands, bréf 6. júlí 2023 v. lausagöngu búfjár – til kynningar
- Forstöðumannaskýrslur – til kynningar
- Samantekt sveitarstjóra v. stöðu verkefna í júní – til kynningar
- Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir nr. 929 frá 9. júní 2023, 930 frá 15. júní 2023 og nr. 931 frá 22. júní 2023 – Til kynningar
- Stjórn Hafnasambands Íslands fundargerð nr. 454 frá 13. júní 2023 –til kynningar
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Þorgeir Pálsson
Jón Sigmundsson
Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir
Matthías Sævar Lýðsson
Hlíf Hrólfsdóttir
Stefnt er á að streyma fundinum á youtube síðu Strandabyggðar https://www.youtube.com/channel/UCeIjqjE2w2-V0IMQ9ZxplvA
Strandabyggð 4. ágúst 2023
Þorgeir Pálsson oddviti