Sveitarstjórnarfundur nr. 1230
Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. janúar 2015
Fundur nr. 1230 í sveitarstjórn í Strandabyggð verður haldinn í miðvikudaginn 14. janúar, kl. 17.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík.
Fundardagskrá er svohljóðandi:
- Erindi frá Baskavinafélaginu á Íslandi varðandi beiðni frá San Sebastian um að gerast vinabær Hólmavíkur og þátttöku í alþjóðlegu málþingi um Spánverjavígin 1615 dagana 20.-21.apríl n.k. ásamt afhjúpun á minningarskjaldar á Hólmavík 23.apríl.
- Styrktarsamningar við félög í Strandabyggð
- Breyting á gjaldskrá framleiðslueldhúss í Félagsheimili
- Stuðningur við Snorraverkefnið erindi frá 17.nóvember 2014
- Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna styrkbeiðni vegna Eldvarnarátaksins 2014 frá 1.desember 2014
- Erindi frá Héraðssambandi Strandamanna, ósk um styrk frá 30/11/2014
- Fundargerð Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða frá 28/11/2014
- Fundargerð Velferðarnefndar frá 22/10/2014
- Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar frá 09/01/2015
- Fundargerð Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar frá 12/01/2015
Gert er ráð fyrir að eftirtaldir sveitarstjórnarmenn sitji fundinn:
Haraldur V. A. Jónsson
Ingibjörg Benediktsdóttir
Ingibjörg Emilsdóttir
Jón Gísli Jónsson
Viðar Guðmundsson
12. janúar 2015
Jón Gísli Jónsson oddviti