Sveitarstjórnarfundur þriðjudaginn 1. mars 2011
| 22. febrúar 2011
Fundur 1178 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 1. mars n.k. Frestur til að skila inn erindum fyrir fundinn rennur út á miðnætti miðvikudaginn 23. febrúar. Dagskrá fundarins verður auglýst á vefsíðu sveitarfélagsins, í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík, Söluskála KSH og í anddyri Þróunarsetursins. Sveitarstjórnarfundurinn verður haldinn á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, 2. hæð, og hefst kl. 18:15.