Það sem koma skal!
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Eins og sumir tóku eftir, fengum við góða heimsókn í dag. Skemmtiferðaskipið Greg Mortimer, frá fyrirtækinu Aurora Expeditions, lagðist við akkeri rétt fyrir utan höfnina. Gúmíbátar ferjuðu talsverðan fjölda gesta í land, sem gengu um götur Hólmavíkur, fóru á Galdrasafnið ofl. Skipið, sem er nýlegt, smíðað 2019, er í sinni fyrstu ferð til Íslands. Héðan fer það inn á Eyjafjörð og heimsækir Akureyri. Skip af þessari stærðargráðu getur hæglega heimsótt Hólmavík og lagst að bryggju og nú vinnum við saman að því að svona heimsóknir verði mun algengari á næstu árum. Tækifærið er til staðar.
Framundan er mjög efnismikill sveitarstjórnarfundur þann 9.8. n.k., þar sem m.a. verður tekið fyrir erindi um hugsanlega hótelbyggingu á Hólmavík. Það er mjög jákvætt og ánægjulegt að þetta erindi sé komið inn á borð sveitarstjórnar, því hótelbygging hér myndi breyta mjög miklu hvað varðar stöðu Strandabyggðar í ferðaþjónustu, ráðstefnuhaldi og viðburðastjórnun. Slíkri byggingu fylgja að auki margvísleg hliðaráhrif og má þar kannski fyrst nefna eftirspurn eftir húsnæði, þjónusta iðnaðarmanna ofl.
Strandabyggð vinnur nú að endurskoðun á aðalskipulagi þar sem við þurfum að horfa fram í tímann, hugsa stórt og reyna að sjá fyrir okkur Strandabyggð eftir tugi ára. Í endurnýjuðu aðalskipulagi þarf að gera ráð fyrir aukinni íbúðabyggð, stærra iðnaðarsvæði og hugsanlegu hóteli, þannig að tímasetning þessa erindis er sérlega góð og felur í sér mikið og margþætt tækifæri.
Verum jákvæð og leyfum okkur að hugsa fram í tímann. Það er ávísun á framþróun.
Góða helgi!
Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti