Þarft þú aðstoð?
| 26. mars 2020
Strandabyggð, Rauði Krossinn og sóknarprestur hafa í samvinnu leitað til fólks í Strandabyggð og beðið það að skrá sig á lista yfir sjálfboðaliða sem vildu taka að sér að aðstoða íbúa við ýmis verk, nú þegar þrengir að og óvissa ríkir í samfélaginu. Þegar hafa fjölmargir skráð sig og nú viljum við því bjóða fram þessa þjónustu.
Vantar þig aðstoð við að:
- Fá keypta matvöru?
- Sinna erindum á pósthús eða aðra staði?
- Moka snjó af tröppum?
Eða værir þú kannski bara til í símtal um daginn og veginn?
Ef svo er, þá hvetjum við þig til að hringja í eitthvað eftirtalinna númera: 451-3510 (Skrifstofa Strandabyggðar), 862-3517 (Sigríður Óladóttir, sóknarprestur) eða 899-0020 (Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri).
Ekki hika við að hafa samband. Við viljum hjálpa.