Þjónustusamningur við dýralækni
| 30. apríl 2012
Matvælastofnun hefur gert
þjónustusamning við Gísla Sverri Halldórsson, dýralækni, um að taka að sér
almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á þjónustusvæði 2, (Dalabyggð,
Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og
Bæjarhreppur), sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum. Um skammtímasamning er að ræða sem gildir á tímabilinu
1.05.2012-1.06.2012.
Áfram er unnið að því að tryggja varanlega dýralæknaþjónustu á þjónustusvæði 2.
Gísli Sverrir mun hafa aðstöðu að Ægisbraut 19 í Búðardal en símanúmer hans eru: 434-1122, 862-9005
Áfram er unnið að því að tryggja varanlega dýralæknaþjónustu á þjónustusvæði 2.
Gísli Sverrir mun hafa aðstöðu að Ægisbraut 19 í Búðardal en símanúmer hans eru: 434-1122, 862-9005