A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Þróun heimahaganna: Hugmyndir og sjónarmið

| 31. ágúst 2016
« 1 af 2 »

Súpufundur í Króksfjarðarnesi 6. september 2016, kl. 17.30

Allir íbúar í Strandabyggð, Reykhólahreppi og Dalabyggð velkomnir!

 

Þriðjudaginn 6. september nk. verður haldinn opinn fundur í Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi þar sem íbúum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar gefst tækifæri til að kynna sér vinnu við svæðisskipulagsáætlun fyrir sveitarfélögin og leggja sitt af mörkum við mótun áætlunarinnar. Verkefnið snýst um að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar. Sú stefna þarf að eiga fótfestu í reynslu íbúa og sýn á svæðið, auðlindir þess og tækifæri. Sjá nánar um verkefnið á vefnum samtakamattur.is.

 

Á fundinum verða kynntar mögulegar áherslur við að styrkja ímynd svæðisins og við að þróa meginatvinnugreinar, en þær byggja á ýmsum gögnum um svæðið, hugmyndum og sjónarmiðum sem komu fram á opnum fundi í Tjarnarlundi í lok apríl sl. Áherslurnar verða ræddar og fundarmenn taka síðan þátt í að setja fram tillögur um ferðaleiðir og áfangastaði. 

 

Svæðisskipulagsnefnd hvetur alla sem hafa áhuga á framtíð svæðisins að koma á fundinn, kynna sér vinnuna  og ræða tækifærin til að nýta auðlindir og sérkenni svæðisins til eflingar atvinnulífs og byggðar.

 

Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Matthildi Kr. Elmarsdóttur hjá Alta á netfangið matthildur@alta.is eða í síma 582 5000, fyrir mánudaginn 5. september. Vegna veitinga á fundinum og skipulags hópavinnu er nauðsynlegt að skrá sig.

 

Með haustkveðju,

Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón