Tilboð óskast í smíði réttar í Staðardal
Þorgeir Pálsson | 25. júlí 2022
Strandabyggð auglýsir eftir tilboðum í smíði réttar í Staðardal, í landi Hrófbergs. Engin tilboð bárust í verkefnið þegar fyrst var auglýst. Endurgerð verklýsing og teikning byggingarfulltrúa af réttinni, liggur fyrir hjá sveitarstjóra.
Tilboðum skal skila til sveitarstjóra Strandabyggðar, fyrir kl 12:00, föstudaginn 29. Júlí 2022, á thorgeir@strandabyggd.is
Allar frekari upplýsingar og tilboðsgögn, veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson, í síma 899-0020 eða í tölvupósti thorgeir@strandabyggd.is