Tilkynning frá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps
| 01. apríl 2014
Magnús Baldursson sálfræðingur verður á Hólmavík 29. apríl næstkomandi. Þeir íbúar sem vilja óska eftir tíma hjá Magnúsi er bent á að hafa samband við Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Stranda og Reykhólahrepps á skrifstofutíma í síma 451-3521 eða að senda á hana póst í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is .