Tilnefningar til Menningarverðlauna Strandabyggðar 2011
| 05. júlí 2011
Eftirtaldir aðilar fengu tilnefningar árið 2011:
- Áhorfandinn hlýtur tilnefningu vegna þess að hann er kjarni öflugs menningarlífs og lykillinn að lifandi samfélagi.
- Einar Hákonarson myndlistarmaður hlýtur tilnefningu vegna framlags til menningar og lista.
- Félag eldri borgara á Hólmavík hlýtur tilnefningu fyrir einstaklega gefandi félagsstarf og þjónustu við samborgara sína á sjúkrahúsinu á Hólmavík.
- Félagsmiðstöðin Ózon hlýtur tilnefningu fyrir framlag sitt til menningarmála með samspilstónleikum í maí.
- Hafþór Ragnar Þórhallsson hlýtur tilnefningu fyrir einstakt handverk.
- Handverksmarkaðurinn Strandakúnst hlýtur tilnefningu fyrir sölu á minjagripum og handverki frá Ströndum.
- Kaldalónstónar hljóta tilnefningu fyrir einstaka dagskrá um Sigvalda Kaldalóns í samvinnu kórs Hólmavíkurkirkju, Þjóðfærðistofu og Snjáfjallaseturs.
- Leikfélag Hólmavíkur hlýtur tilnefningu fyrir leikrit, leikferðir, hátíðir, búninga, ljósameistara, brellur og hlátur og fyrir að auðga mannlíf á Ströndum undanfarin 30 ár.
- Strandir.is hlýtur tilnefningu fyrir öfluga fréttamennsku af menningarstarf undanfarin ár.
- Sævar Benediktsson og Elísabet Pálsdóttir hljóta tilnefningu fyrir vinnu og endurbætur við Steinhúsið þar sem elsta steinsteypta húsið á Hólmavík er hafið til vegsemdar og virðingar á ný.
- Tónskólinn á Hólmavík fyrir frábært framlag til menningarstarfs
- Þjóðfræðistofa fyrir Skelina, Lista og fræðimannadvöl á Ströndum. Verkefnið er viðamikið innlegg í menningarlíf sveitarfélagsins og er jákvætt fyrir svæðið.