Tímabundin staða verkefnisstjóra/verktaka vegna gatnaframkvæmda
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir lausa til umsóknar tímabundna stöðu verkefnisstjóra/verktaka vegna fyrirhugaðra gatnaframkvæmda í bænum. Helstu verkefni tengjast undirbúningi og framkvæmd við gatnagerð á Hólmavík og er áætlað að undirbúningsframkvæmdir hefjist nú í haust.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af stjórnun og framkvæmd við gatnagerð, góða samskiptahæfileika og vera útsjónarsamur.
Frekari upplýsingar vegna starfsins er hægt að nálgast hjá Andreu K. Jónsdóttur sveitarstjóra Strandabyggðar á skrifstofunni eða í síma 4513510 og/eða hjá Jóni Gísla Jónssyni oddvita Strandabyggðar í síma 6617061
Umsóknum skal skilað á skrifstofur Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 8. október 2014.