UPP MEÐ SOKKANA
Karlahlaup 8.mars kl.11 hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík, hlaupnir verða 5 km.
Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til karlahlaups á vegum Krabbameinsfélagsins. ATHUGIÐ að klíkur af öllum stærðum og gerðum, gengi, vinahópar, félagsmenn og aðrir hópar eru hvattir til að mæta í hlaupið undir eigin „flaggi og fána“ til að setja svip sinn á hlaupið.
Heyrst hefur að Saumastofu Siggi sjái um upphitun
Skráningargjald er 4.500 kr. en innifalið er eitt fallegt par af Mottumars-sokkum. Yngri en 18 ára greiða aðeins 2.500 kr. í skráningargjald – og fá auðvitað líka sokka. Auka sokkar verða til sölu á staðnum og kostar parið 2000 kr. stærðir frá 26 - 45. Allur ágóði skráningargjalds og kaup á sokkapörum rennur óskiptur til félagsins, undir átakinu Mottumars.
Sjá nánar á www.krabb.is Upp með sokkana.
ATH! Ef veður hamlar hlaupi verður þátttakendum hlaupsins boðið upp á að hlaupa/hreyfa sig í sal íþróttahússins.