Umhverfisátak í Strandabyggð
| 26. apríl 2019
Sæl öll,
Eins og sagt hefur verið frá áður verður farið af stað með umhverfisátak í Strandabyggð á þessu kjörtímabili og er það í raun þegar hafið. Í dag komu fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða og settu límmiða á bíla og aðra muni, sem ekki standast kröfur og samþykktir um umhverfismál á almannafæri. Nú gefst eigndum þessara muna tími næstu 14 daga til að fjarlægja þá eða ræða við sveitarfélagið um aðra lausn í málinu. Við hvetjum ykkur sem hlut eiga að máli því til að hafa samband svo við getum í sameiningu fegrað bæinn okkar og gert umhverfið vistvænna.
Í næstu viku er svo stefnt að fundi með rekstraraðilum á Skeiðinu, þar sem næstu skref þar verða rædd.
Það er öllum ljóst að þetta er mikið átaksverkefni og verður ekki unnið nema í samstarfi við þá sem hlut eiga að máli. Við óskum því eftir góðri samvinnu um þetta mikilvæga verkefni.
Kveðja
Þorgeir Pálsson