Úr fundargerð sveitarstjórnarfundar 1270 frá 13. febrúar 2018
Sjá fundargerð hér.
Stefnumótun 2016 – 2021, skýrsla Thorp ehf
Sveitarstjórn Strandabyggðar þakkar öllum þeim sem komu að stefnumótunarvinnu Strandabyggðar frá 2016 -2021. Margt af þeim góðu ábendingum sem fram koma í skýrslunni hafa orðið að veruleika og unnið hefur verið að öðrum málum. Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að stefnumótunar skýrslan verði leiðandi plagg í vinnu sveitarfélagsins. Skýrsluna má sjá í heild sinni hér.
Vegna hitaveitu
Sveitarfélagið Strandabyggð hefur unnið að frumhönnun og kostnaðaráætlun vegna hitaveituframkvæmda í Strandabyggð. Allt sem unnið hefur verið að til þessa gefur tilefni til bjartsýni og styður við þær væntingar að hitaveita geti orðið að veruleika í sveitarfélaginu.
Settur hefur verið saman vinnuhópur til að vinna að undirbúningi hitaveituframkvæmda en hann er skipaður eftirfarandi aðilum: Maríu Maack frá Vestfjarðastofu og er hún verkefnastjóri undirbúningsfasa, Ástu Þórisdóttur, Jóni Gísla Jónssyni, Ingimundi Jóhannssyni og Andreu Jónsdóttur.